Fréttir
Leikir tímabilsins
Leikmenn meistaraflokks
Tenglar
Stjórn
Myndir
N1 deild karla
Veldu leiktímabil
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
Senda skilaboð
Handknattleiksdeild KA
Handknattleiksdeild Þórs
Karlar
Næstu leikir
HK - Akureyri
Fim 30. september 2010 kl. 18:30
N1 deild karla
Akureyri - Afturelding
Fim 7. október 2010 kl. 19:00
N1 deild karla
Nýjustu úrslit
Valur-Akureyri
30-26
Mán 26. apríl 2010
N1 deild 4-liða úrslit
deildin staðan
Fréttir
Það er nóg að gera hjá strákunum um helgina
21. janúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Undirbúningur næsta hluta N1-deildarinnar á fullu
Næsti leikur Akureyrar í N1 deildinni er útileikur gegn FH þann 4. febrúar og fullvíst að hann verður erfiður. Við skulum þó muna að Akureyri sigraði einmitt FH í Kaplakrikanum þegar liðin mættust þar í N1 deildinni í fyrravetur og ekkert sem segir að það geti ekki endurtekið sig.
Næsti leikur þar á eftir er síðan heimaleikur gegn Gróttu þann 8. febrúar. Það er rétt að minna á Gróttuleikurinn er á mánudegi og eins gott að minna alla stuðningsmenn á það.
En lið Akureyrar undirbýr sig af kappi fyrir komandi átök. Í kvöld lék liðið æfingaleik við Valsmenn sem eru hér í undirbúningsferð.
Vissulega var þetta bara æfingaleikur en mörkin voru talin og að leikslokum fór Akureyri með eins marks sigur. Leikurinn var fínn sem slíkur og menn ánægðir með það sem út úr honum kom.
Á morgun heldur Akureyrarliðið suður yfir heiðar þar sem það tekur þátt í fjögurra liða móti sem Haukar standa fyrir og kallast Eiðsmótið.
Þar taka þátt meistaraflokkar karla frá Haukum, Fram, Gróttu og Akureyri. Mótið er tileinkað minningu Eiðs Arnarsonar, fyrrverandi formanns handknattleiksdeildar Hauka. Leikið verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu á laugardag og sunnudag. Ókeypis aðgangur er á leikina og hvetjum við alla handknattleiksunnendur til að fjölmenna í Strandgötuna en dagskrá mótsins er sem hér segir:
Laugardagur 23. janúar
Kl. 10:00 Haukar – Fram
Kl. 11:30 Grótta – Akureyri
Kl. 16:30 Akureyri – Fram
Kl. 18:00 Haukar – Grótta
Sunnudagur 24. janúar
Kl. 14:30 Fram – Grótta
Kl. 16:00 Haukar – Akureyri
Við munum fjalla um leiki Akureyrar á mótinu hér á síðunni að vanda.
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson