Fréttir
Leikir tímabilsins
Leikmenn meistaraflokks
Tenglar
Stjórn
Myndir
N1 deild karla
Veldu leiktímabil
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
Senda skilaboð
Handknattleiksdeild KA
Handknattleiksdeild Þórs
Karlar
Næstu leikir
HK - Akureyri
Fim 30. september 2010 kl. 18:30
N1 deild karla
Akureyri - Afturelding
Fim 7. október 2010 kl. 19:00
N1 deild karla
Nýjustu úrslit
Valur-Akureyri
30-26
Mán 26. apríl 2010
N1 deild 4-liða úrslit
deildin staðan
Fréttir
Árni fór á kostum þegar liðin mættust í Krikanum í fyrra
2. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
N1 deildin hefst á ný: FH - Akureyri á fimmtudaginn
Á fimmtudaginn heldur Akureyrarliðið til Hafnarfjarðar og mætir FH-ingum í N1 deildinni. Strákarnir eru orðnir býsna vanir því að spila í Hafnarfirði upp á síðkastið, spiluðu þar í deildarbikarnum og sigruðu í Eiðsmótinu fyrir nokkrum dögum síðan.
Að þessu sinni er það stórleikur í toppbaráttunni en Akureyri og FH eru með jafnmörg stig í 2. og 3. sæti deildarinnar og ljóst að ekkert verður gefið eftir.
Svipuð staða var í deildinni í fyrra en þá voru liðin jöfn á toppnum og FH búið að sigra fyrsta leikinn og jafnframt búið að slá Akureyri út úr bikarnum. Akureyri var í mesta basli mestallan leikinn en með stórkostlegum endaspretti fór Akureyri með tveggja marka sigur af hólmi og settist í toppsæti deildarinnar. Árni Sigtryggsson fór á kostum í leiknum og skoraði 11 mörk.
Hér er hægt að
skoða umfjöllunina um þennan magnaða leik
.
Það þarf ekki að efast um það að strákarnir munu mæta brjálaðir í þennan leik enda klæjar menn í lófana eftir langt hlé. Leikurinn hefst klukkan 18:30 á fimmtudaginn og verður í beinni útsendingu á SportTV.is.
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson