Fréttir
Leikir tímabilsins
Leikmenn meistaraflokks
Tenglar
Stjórn
Myndir
N1 deild karla
Veldu leiktímabil
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
Senda skilaboð
Handknattleiksdeild KA
Handknattleiksdeild Þórs
Karlar
Næstu leikir
HK - Akureyri
Fim 30. september 2010 kl. 18:30
N1 deild karla
Akureyri - Afturelding
Fim 7. október 2010 kl. 19:00
N1 deild karla
Nýjustu úrslit
Valur-Akureyri
30-26
Mán 26. apríl 2010
N1 deild 4-liða úrslit
deildin staðan
Fréttir
Það stefnir í að við fáum girnilegar handboltauppskriftír hér á síðunni
14. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Matarkrókurinn - Guðlaugur Arnarsson
Í blaðinu Vikudegi er athyglisverður þáttur sem kallast
Matarkrókur
. Þar eru ýmsir matgæðingar fengnir til að birta uppskriftir sínar og skora síðan á einhvern til að koma í næsta þátt. Þann 4. febrúar var handboltamaðurinn Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar, matarkrókur vikunnar mættur með girnilega uppskrift. Guðlaugur segir að þetta sé tilvalinn réttur daginn fyrir leik, eða á leikdag.
Pasta í skinkurjóma
250 g pastareimar (tagliatelle)
200 g skinka
200 g sveppir
1 blaðlaukur
1 msk. matarolía
1 dós sýrður rjómi (10%)
1 msk. ljóst franskt sinnep
1 – 2 hvítlauksrif
Salt og pipar
Pastað soðið eftir leiðbeiningum, skinkan skorin í strimla og blaðlaukur í sneiðar. Hitið sveppi og blaðlauk í olíunni, bætið skinkunni á pönnuna. Sýrða rjómanum er hrært rólega út í. Bragðbætt með hvítlauk, sinnepi, salti og pipar.
Sósunni er hellt yfir pastað og síðan borið fram. Gott er að hafa hvítlauksbrauð með og parmesanost til að dreifa yfir pastað.
„Virkilega bragðóður réttur sem auðvelt er að útfæra og breyta“ segir Gulli sem skoraði á Hörð Fannar Sigþórsson, línumann að koma með næstu uppskrift.
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson