Fréttir
Leikir tímabilsins
Leikmenn meistaraflokks

Tenglar
Stjórn
Myndir

N1 deild karla
Senda skilaboð

Handknattleiksdeild KA
Handknattleiksdeild Þórs 
 
Karlar
Næstu leikir
HK - Akureyri
Fim 30. september 2010 kl. 18:30
N1 deild karla
Akureyri - Afturelding
Fim 7. október 2010 kl. 19:00
N1 deild karla
Nýjustu úrslit
Valur-Akureyri 30-26
Mán 26. apríl 2010
N1 deild 4-liða úrslit
deildin staðan







Fréttir

Höddi sýnir hér að hann kann ýmislegt fyrir sér í eldamennskunni



16. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Matarkrókurinn - Hörður Fannar Sigþórsson  
Við höldum hér áfram með Matarkókinn úr Vikudegi en Hörður Fannar Sigþórsson tók áskorun Guðlaugs Arnarssonar og er hér mættur með nokkrar girnilegar uppskriftir.

Íslandia kryddað lambalæri

  • Læri
  • Ólífuolía
  • Íslandia krydd frá Pottagöldrum
  • Salt og pipar
Lærið er látið standa í fjóra sólarhringa í kæli þ.a. tvo sólarhringa olíuborið og kryddað. Steikt í potti með loki við 170°C þar til kjöthitamælir sýnir c.a. 70°C inn við bein. Vatn er haft í pottinum og notað sem soð í sósuna. Lærið er brúnað í opnum potti í lokin við hærri hita.

Sósa
Sósa er uppbökuð smjörbolla, í hana er bætt steiktum sveppum á´samt soðinu af lærinu, klípu af gráðosti, rifsberjageli, 1 msk. af Oskar lambakjötskrafti og rauðvíni eftir smekk. Mýkt með rjóma áður en hún er borin fram.

Meðlæti
Brúnaðar kartöflur og hrásalat.

Skálaréttur Hafdísar

  • 1 stk. marengsbotn
  • 1 epli
  • 3 stk. Mars
  • Fersk jarðarber
  • ½ l rjómi
Marengsbotn brotinn ofan í skál, epli og Mars skorin í litla bita og rjóminn þeyttur. Þessu er blandað varlega saman. Svo er fínt að skreyta réttinn með ferskum jarðarberjum.

Gulrótarkaka

  • 4 stk. Egg
  • 150 g sykur
  • 140 g púðursykur
  • 1 tsk. Vanilludropar
  • 200 g gulrætur, rifnar
  • 240 g hveiti
  • 2 tsk. Matarsódi
  • ½ tsk. Salt
  • 1 msk. Kanill
  • 2 dl matarolía
Egg, sykur, púðursykur og vanilludropar þeytt saman. Því næst er þurrefnunum bætt út í, svo gulrótunum og olían síðust. Sett í 2 hringlaga form og bakað við 175°C í 30 mínútur.

Krem
  • 400 g rjómaostur
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 80g flórsykur
  • 1,5 tsk. vanillusykur eða dropar
Rjómaosturinn hrærður vel fyrst og hitt er svo hrært saman við. Botnarnir lagðir saman með kreminu og afganginum smurt ofan á.

„Verði ykkur að góðu. Ég ætla að skora á hinn baneitraða hornamann Odd Gretarsson að leggja til uppskriftir í næsta matarkrók“ segir Hörður Fannar Sigþórsson að lokum.
Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson