Fréttir
Leikir tímabilsins
Leikmenn meistaraflokks

Tenglar
Stjórn
Myndir

N1 deild karla
Senda skilaboð

Handknattleiksdeild KA
Handknattleiksdeild Þórs 
 
Karlar
Næstu leikir
HK - Akureyri
Fim 30. september 2010 kl. 18:30
N1 deild karla
Akureyri - Afturelding
Fim 7. október 2010 kl. 19:00
N1 deild karla
Nýjustu úrslit
Valur-Akureyri 30-26
Mán 26. apríl 2010
N1 deild 4-liða úrslit
deildin staðan







Fréttir

Þetta verður rosalegur leikur



4. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Útileikur gegn HK - sýndur á SportTV.is 
Í dag er komið að síðasta leik Akureyrar Handboltafélags í 2. hluta N1 deildarinnar þegar liðið fer í Kópavoginn og mætir heimamönnum í HK. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið sem eru að berjast um að verða í fjórum efstu sætum deildarinnar þegar 3. hluti deildarinnar hefst. Það stafar af því að fjögur efstu liðin munu fá fjóra heimaleiki og þrjá útileiki í lokahluta deildarinnar á meðan að neðstu fjögur liðin fá þrjá heimaleiki en fjóra útileiki.

Það eru sem sé tvö dýrmæt stig í boði og aukaheimaleikur sem er að sjálfsögðu mikilvægt fyrir stuðningsmennina hér heima auk þess sem það er fjárhagslega hagkvæmt upp á ferðakostnað.

Leikurinn verður sýndur beint á SportTV.is og hefst klukkan 18:30.

Vitað er að Andri Snær Stefánsson og Bjarni Jónasson verða ekki í leikmannahópnum í dag. Andri Snær glímir enn við axlarmeiðsli sem hann fékk í leiknum gegn Gróttu og Bjarni er meiddur á ökkla.

Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá leiknum á stóru tjaldi í KA heimilinu og eru allir stuðningsmenn velkomnir þangað.

Leikur liðanna í Höllinni þann 25. nóvember síðastliðinn varð æsispennandi en lauk með eins marks sigri Akureyrar 27-26 og því má búast við hörkuleik í Kópavoginum. Í síðasta leik sínum unnu HK góðan útisigur á Val en töpuðu þar á undan illa fyrir Haukum.

Við hvetjum stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu til að mæta í Digranesið og styðja sína menn og jafnframt bendum við á útsendinguna á SportTV.is sem er hægt að nálgast hér þegar þar að kemur.


Sveinbjörn og Atli Ævar verða á heimavelli að þessu sinni

Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson